Heimsmarkmiðin
Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun tóku gildi í byrjun árs 2016. ÁTVR hefur hafið vinnu við að innleiða þau í ferla fyrirtækisins. Þetta eru víðtækustu markmið sem ríki heims hafa komið sér saman um og stefnt er að því að tryggja velmegun og mannréttindi um allan heim fyrir árið 2030.
Aðal áherslan hjá ÁTVR er að vinna í átta heimsmarkmiðum en þau falla vel að áherslum fyrirtækisins. Ábyrg neysla (12) og heilsa og vellíðan (3) en þar koma lýðheilsusjónarmið við sögu, verndun jarðarinnar (13), jafnrétti (5 ), hreint vatn og salernisaðstaða (6), líf í vatni (14), líf á landi (15), samvinna um markmiðin (17) og aðfangakeðjan en hún kemur sterk inn í restina af markmiðunum.
ÁTVR ætlar að segja góðar fréttir árið 2030.



- Fjarvistir frá vinnu 2,5%
- Boðið upp á fyrirlestra
- Líkamsræktarstyrkir
- Samgöngusamningar, 53% starfsfólks yfir sumarið og 35% yfir veturinn
- Verkefnið góð heilsa allt árið. Boðið upp á árlega heilsufarsmælingu fyrir allt starfsfólk
- ÁTVR framfylgir stefnu stjórnvalda um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð í áfengis- og tóbaksmálum í sátt við samfélagið (3.5 og 3.a)
- WOWcyclothon
- Lífshlaupið - efst í hlutfalli daga hjá fyrirtækjum með 400-799 starfsmenn
- Þátttaka í Hjólum í vinnuna og Lífshlaupinu



- Greitt í Pokasjóð, 17 milljónir
- Árangursmælingar. Skorkort Vínbúðanna og fleiri skorkort
- Margnota burðarpokar
- Hátt hlutfall rafrænna reikninga, 91% viðskiptavina m.v. veltu.
- ÁTVR hefur styrkt og starfað með aðilum sem sinna ýmsum mannúðar- og forvarnarmálum
- Matjurtagarður - sjálfbærniverkefni starfsfólks



- 98% endurvinnsluhlutfall á úrgangi árið 2030. Endurvinnsluhlutfall í dag 92%
- Fyrirmynd í samfélagslegri ábyrgð.
- Ánægja hjá viðskiptavinum.
- Skilríkjaeftirlit í Vínbúðum.
- Óútskýrð rýrnun 0,03%.
- ÁTVR framfylgir stefnu stjórnvalda um bætta lýðheilsu og samfélagslega ábyrgð í áfengis- og tóbaksmálum í sátt við samfélagið
- Lífsferilsgreining á vörusafni
- Ársskýrsla samkvæmt sjálfbærniviðmiðum Global Reporting Initiative (GRI)
- Leggja áherslu á umbúðir vöru. Sjálfbært efnisval og endurvinnsla í verslunum okkar. Skoða úrval á fylgihlutum og umhverfisþætti þeirra.

- Kuðungurinn 2015 - viðurkenning á framlagi fyrirtækja og stofnana til umhverfismála frá Umhverfisráðuneytinu
- Beina sjónum að orkunotkun og framkvæmd endurnýjanlegrar orku í öllu framleiðsluferlinu og leggja áherslu á sjálfbærar ræktunaraðferðir t.d. binding kolefnis. Leggja áherslu á á orkusparnað og að draga úr CO2 losun í verslunum okkar.
- Loftslagsmarkmið til 2030, 40% samdráttur á CO2 og 98% endurvinnsluhlutfall á úrgangi. Endurvinnsluhlutfall í dag 92%
- Kolefnisjöfnun hjá Kolviði. Jákvætt sótspor
- Allur pappír vistvænt vottaður og krafist er vistvænt vottaðra aðfanga frá birgjum.
- Vistvæn innkaup og grænt bókhald opinbera aðila
- Uppfyllt fimm Græn skref í ríkisrekstri og eftirfylgni fyrir höfðustöðvar og í öllum 51 Vínbúðum
- Lífsferilsgreining á vörusafni til að finna mestu umhverfisáhrifin og minnka sótspor í aðfangakeðjunni.



- Vinnum að umhverfismálum með systurfyrirtækjum á Norðurlöndum
- Global Compact og siðareglur BSCI
- Lokaverkefni um sjálfbærni og samfélagslega ábyrgð með erlendum og innlendum mastersnemum
- Ársskýrsla samkvæmt viðmiðum Global Reporting Initiative (GRI)
- Styrkja mismunandi samstarf til að ná markmiðum með alþjóðlegri, innlendri og iðnaðar-sértækri samvinnu: Norræn samvinna, alþjóðleg samtök, samtök innan iðnaðarins (OIV (International Organisation of Vine and Wine), vottunaraðilar), frjáls félagasamtök
